Um mig: Ég er nemandi í verkfrćđi í HÍ. Mér finnst rosalega gaman ađ syngja og er í Háskólakórnum. Uh hvađ meira, já elska ađ ferđast og líka ađ gera ekki neitt, er komin međ algjöra prjónadellu, og dýrka ađ horfa á sjónvarpsseríur...
Já, ég er ekkert duglegust eitthvað að blogga í heiminum um þessar mundir. Hvað kemur til, jú ég held að það sé vegna tilkomu facebook. Þar geta allir séð stöðuna og vitað hvað maður er að gera og þar eru allir vinir manns, og maður getur skoðað myndir og farið í leiki og kommentað hjá öðrum.
En hvað er svona mest að frétta frá seinasta bloggi, jú ég fór í kóræfingabúðir með Háskólakórnum og við vorum að æfa Messias eftir Handel. Þetta er svona allt að koma hjá okkur, og við í kórnum verðum með risa tónleika með nokkra hljóðfæraleikara úr Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt einsöngvurum. En tónleikarnir verða mánudaginn 24. og þriðjudaginn 25. nóvember. Þetta á eftir að verða geðveikt, vorum að æfa Halleluja, sem flestir ættu að kannast við ef þeir heyra það, en já við ætlum að syngja Halleluja í messu núna á sunnudaginn, bæði prófa að syngja þetta svona fyrir framan áhorfendur og kynna tónleikana. Þannig að núna næstu daga verður fátt annað en handel í mínum ipod.
En fyrir áhugasaman þá kostar 1500 kr í forsölu og 2000 við dyr á tónleikana og þeir byrja klukkan 20, 24. og 25. nóv. Endilega ef þið viljið koma, sendið mér bara email á sss14@hi.is og ég skal selja ykkur miða.
En í kórbúðunum var ágætisfjör, sigga var svo góð að minna stjórnina á það að það ætti eftir að busa mig, þannig að ég fékk að drekka mysu og hvítvín blandað saman og láta mata mig af súrmjólk og fleira skemmtilegt, en þessi ógeðisdrykkur var algjört ógeð, mér finnst mysa algjör vibbi og hvítvín er ekki í mínu uppáhaldi þannig að þeim tóks vel að búa til ógeð.
Svo núna í gær var svona kvennakvöld hjá verkfræðistelpunum, nokkrar stelpur voru búnar að gera sal voða kósý, kerti og læti og svo fengu allir svona snyrtivöruprufur, og 3 verkfræðikonur komu og töluðu við okkur og sögðu okkur frá þeirra reynslu sem kvenkynsverkfræðingar. Petra, ég og Guðrún eftir kvennakvöldið,
Þetta var svoona kokteilboð og allir voða fínir, svo gaman að vera fínn. Í enda kvöldsins þá kom kona frá Adam og Evu og var með kynningu á kynlífstólum og ýmsum varningi. Svo kíktum við stelpurnar smá í bæinn eftir kvennakvöldið og audda var stoppar á pizza pronto og fengið sér pizzu :p
En já Ása tása á afmæli í dag, stóra systir, til hamingju með það, alveg orðin 26 ára, ji tíminn líður.
Já herrar mínir og frú, það er orðið "official", facebook er búið að yfirtaka heiminn. Nú af hverju segji ég það, jú því ég það er ekkert annað að gerast nema að facebook er búið að yfirtaka heiminn þegar bæði lilja frænka og pabbi minn fá sér facebook, á dauða mínum átti ég von, en ekki að pabbi myndi fá sér facebook. Hvað kemur næst, mamma með facebook :o.
En já þessa helgi var margt gert. Föstudagur vísó í Húsasmiðjuna og svo á laugardaginn var mikið busy dagur. Fyrst um daginn var sungið við útskrift Háskóla Íslands, þar næsta var frænkuboð þar sem eldaður var dýrindismatur og geggjaðslega góður eftirréttur mmmm. Þetta var svona ís og rískúlur og marssósa og marens. mmmm delisss. En strax að frænkuboði loknu var haldið í grímupartý á vegum kórsins þar sem allir voru í svo flottum búningum að það háfa væri nóg. Ég var feitur bankastjói og sigga var svín. Heiða var sexy devil og ragga var gamall perrakall, en seint um síðir í partýinu breyttist ég í feitan banka perrakall og geri aðrir betur. Þetta var mjög skemmtilegt partý og vinningsbúningurinn var frekar sniðugur. Það var hún magga í altinu sem kom sem vínberjaklasi, var í svörtum fötum innanundir og öll sett blöðrum festum með öryggisnælum. Hugmyndaríkur og ódýr búningur, fannst það nokkuð sniðugur.
hér er ragga perragamlikall, ég og vínberjaklasinn. við ragga að perrast eitthvað ehhhhhhhhhh. og gunnar cortez pönkari fyrir aftan.
en já svo á sunnudeginum var verklegt í efnisfræði. Þurftum að mæta klukkan 10, ekki beint það sem marr vill gera á sunnudegi eftir annasaman laugardag að mæta í verklegt, en já verklega var samt fínt. Við fengum að búa til steypu og brjóta timbur og drullumalla með steina. Kannski versti parturinn er að við þurfum að skila svo 5 skýrslum í efnisfræði og svo kemur rekstrarfræðiverkefnið og svo kemur jarðfræðiritgerðin, allt að gerast eitthvað akkúrat núna plús próf á föstudaginn og svo næsta mánudag úff úff úff. Hefur marr orku í þetta allt, plús hin venjulegu skiladæmi. Það mun koma í ljós, en ég er allavegana nett þreytt eftir annasama en skemmtilega helgi.
Jæja ég veit ég veit, ég er búin að vera frekar löt við að blogga, svona eins og við flest annað. En núna er að duga eða drepast, það þarf að spýta í lófana, það er allt að fara á fullt. Öll hópanvinnan er að fara að byrja og fleiri verkefni fara að hrannast upp og svo er ritgerðaskil eftir 2 vikur plú shin reglulegu skilaverkefni í viku hverri. Já já alveg nóg að gera, sem er ekki gott því ég vil bara liggja í leti og gera sem minnst og horfa á sjónvarpið, ahh love it, bara best.
En já svo var próftaflan að koma fyrir nokkrum dögum, að öllu óbreyttur væri ég með hörmulega próftöflu, þ.e próf 8, 10, 11, 12, 16 og 19. Soldið mikið að hafa 3 próf í röð, algjört ógeð.
En við í bekknum erum að reyna að breyta þessu og gera þetta betra, ef það tekst þá verður próftafan mín frekar góð, 2 eða fl dagar á milli allra prófa. En ég get eiginlega ekki farið í próf í röð, því ég meika lítið að læra daginn sem ég fer í próf og svo finnst mér best að læra eitt og eitt fag í einu, ekki lítið af mörgu, þá er heilinn alveg á fullu, þannig að ef þetta væri svona myndi það gera út af við mig. Þannig að við vonum það besta, ég hef yfirleitt verið með ágæta próftöflu og ég held að þetta reddist bara. En það er talað um að reyna að færa samfelldaraflfræðiina sem er 11.des yfir á 5 des og þá er ágætur tími á milli prófa. Sérstaklega því það er fag sem ég veit ekkert alltof mikið um og er soldið mikið steypa þessa stundina.
En já hvað er búið að gerast undafarið, mest bara same old same old. Hélt upp á afmælið mitt seinasta laugardag á prikinu. Fékk nokkra pakka, ég er búin að gleyma því hvað er gaman að fá pakka. Er farin að fá svo ótrúlega fáa pakka um jólin og svo er frekar langt síðan ég hélt upp á afmælið mitt síðast og ég hélt ekki upp á stúdentinn því þá var ég í Kína. Þannig að það var gaman að fá pakka og svona :p.
En já Katrín á afmæli í dag, til hamingju með það litla rúsína. Vona að hún eigi góðan afmælisdag.
Núna er ég í efnisfræðitíma og bara nenni takmarkað að fylgjast með, var líka alveg ótrúlega dugleg í morgun og mætti i skólann kl 8 í tíma sem var varla tími, þannig að þetta kennir mér að ég eigi bara ekkert að mæta í tíma kl 8. Var líka erfitt að sofna í gærkvöldi, því ég var alltaf að hugsa um hversu lítinn svefn ég fengi. En ég þurfti kannski ekkert að hafa áhyggjur af því, því samkvæmt einhverjum svefnprófessor í bandaríkjunum er bara bull að marr þurfi 8 tíma á dag, 5 tímar gæti jafnvel dugað, fer eftir erfðum, og þessi myth um að marr þurfi 8 tíma láti fólk bara hafa áhyggjur, sem og það gerir mér, en ég held þó að ég þurfi meira en 5 tíma sem er ekki gott, því ég er með vaknifóbíu og fara að sofa snemma fóbíu, passar ekki vel saman. Jæja er ekki best að fara að fylgjast með í tímanum, vona að mínir dyggu bloggs-aðdáendur hafi notið þessarar færslu
já gilmore girls tímabili mínu er lokið, var að klára seinasta Gilmore girls þáttinn eftir að hafa horft á 7 seríur á ekki svo löngum tíma, byrjaði að horfa á þetta seinni part sumars. Núna er Rory farin að vinna hjá tímariti og mamman byrjaði loksins með Luke og ég fæ ekki lengur að sjá nýjan þátt af lífi mæðgnan. Þegar ég var í 10 bekk var þetta uppáhaldsþátturinn minn, en svo hætti ég að horfa á hann og byrjaði að gera annað, en fékk svo alla þættina hjá Stellu vinkonu ásu og byrjaði á fullu aftur. Ég kveð Gilmore girls með söknuði en samt smá fegin líka því ég var í lokin eiginlega bara að bíða eftir að þetta væri búið og ég gæti farið að lifa lífinu mínnu upp á nýtt ;).
Núna get ég hætt í letinni og byrjað að fara að læra meira og verið duglegri því ég er búin að vera afar löt undafarna daga sem er ekki alveg það sniðugasta í verden.
En já samt er alveg nóg að gera, t.s á eftir er ég að fara í vísó í Ístak og svo á morgun er rejúníon hjá grunnskólanum mínum garðaskóla, það verður gaman að sjá eitthvað af þessu fólki aftur og frétta hvað allir eru að gera og fleira.
Ætli ég helli ekki smá slúðir hér á bloggið eftir hittinginn ef marr kemst að einhverju, t.d hver er búinn að eignast börn, hver er giftur og hitt og þetta, hver veit ;). Ég er allavegana búin að senda Andreu sem skipurleggur þetta með Petru og Óla alveg helling af myndum. Það var samt soldið erfitt að fatta hvað var tekið í garðaskóla og hvð í MH, því mér finnst einhvernveginn bara eins og katrín hafi verið með okkur í Garðaskóla og ég var alltaf að finna myndir sem Katrín var á sem mér fannst hafa verið tekið í garðaskóla, svo var ég alveg ha nei já alveg rétt hún bjó þá á höfn. Kollinn manns getur stundum ruglað mann.
En já best að fara að gera sig til fyrir vísó, fara í sturtu, klæða sig, snyrta og fá sér eitthvað í gogginn, það má ekki tæpara standa, vísó byrjar svo snemma, en þangað til næst
Jæja núna er Sóla orðin 21 árs. Já tíminn flýgur áfram, mér finnst ég hafa verið 7 ára í gær. Já ég átti afmæli seinasta þriðjudag 16.sept og er núna einu ári eldri. Komin á þrítugsaldurinn guð minn góður.
En á afmælisdaginn minn mætti ég í skólann, og svo fór ég á kóræfingu um 5 leytið með súkkulaðiköku með óhollasta kremi í heimi. Sem sagt ekkert nema flórsykur og smjör nánast. En já kremið var svona ljósbrúnt og leit soldið út eins og skólakæfa, var alveg eins og litin.
Ég bjó til allt allt of mikið krem þannig að það var hellingur eftir og ég leyfði bara Jóni Daða litla bróður að fá sér eins mikið krem og hann vildi og hann prufaði að setja ofan á brauð og líkaði vel. Ég ákvað svo að stríða honum smá seinna og setti kæfu á brauð í staðinn fyrir krem og gaf honum. Honum líkar kæfa afar illa og brá heldur í brún þegar hann bjóst við brauði með gómsætu kremi en fékk í staðinn kæfu. Þetta var soldið fyndið. Evil Sóla :p.
En já kakan sem ég ætlaði að taka með fyrir kórinn var bara á eldhúsborðinu meðan ég fór í sturtu fyrir kóræfingu. En nei nei meðan ég er í sturtu situr þá litli bróðir ekki kæfubita á nokkra kökubita til að hefna sín. Ég vissi ekkert um þetta en svo kem ég með kökuna fyrir kórinn og allt í goodý. Svo er einn biti eftir af kökunni þegar kaffihléð er að verða búið hjá kórnum og ég ákvað að klára seinasta bitann, nei nei er ekki kæfa á bitanum. Þannig að einhverjiri í kórnum hafa verið það heppnir að fá kæfu á sína köku í stað krems og halda að tvíburasysturnar baki frekar skrítnar kökur. Vona bara að Jón Daði hafi ekki sett kæfu á of marga bita.
En já eftir hléð söng allur kórinn fyrir okkur Siggu afmælissönginn, ekki amalegt að láta yfir 60 manns sem öll halda lagi syngja fyrir sig afmælissöng. Eftir kórinn fór ég svo út að borða með Júlla. Vorum bæði voða sæt og fín og í fínum fötum, hann fór í jakkaföt fyrir mig og alles. Var mjög góður matur og svo gaf hann með hálsmen og eyrnalokka í afmælisgjöf sem ég var mjög mjög ánægð með. Ótrúlega sætt hálsmen og sætir eyrnalokkar. Svo fórum við bara heim til hans í rólegheit og sjónvarpsgláp.
En annars er nú ekki mjög mikið hjá mér að frétta, ég er bara búin að vera frekar löt þessa dagana og gera ekkert alltof mikið eitthvað nema að glápa á TV. Er komin á 6 seríu í Gilmore girls, búin að horfa á það eins og brjálæðingur undafarið.
Svo í gær var eitthvað djamm á siggu en ég nennti ekki, letin að gera út af við mig, og ég skutlaði henni bara og ég og heiða horfðum bara á videó heima hjá mér. tókum bara spólur á Bónusvideó í hafnarfirði. Það var nú soldið skrítið að taka spólu þar þar sem það eru engar spólur þar heldur pantar marr bara spólu á einhverri tölvu og skoðar myndirnar í tölvunni. Okkur heiðu fannst þetta nú frekar flókið fyrirbæri og söknuðum smá gömlu aðferðinnar að hafa fullt af spólum í rekkanum og skoða aftan á hulstrin, held ég fíli það betur.
Svo í kvöld er nýliðakórpartý. Þannig að það verður örugglega stuð. Kynnast nýja fólkinu og syngja sig hásan.
Svo verður næsta laugardag rejúníon hjá grunnskólanum mínum. akkúrat á deginum sem ég ætlaði að halda upp á afmælið mitt, en ég afpantaði bara staðinn og fann annan dag. Það verður örugglega gaman að sjá hvernig allir líta út núna og svona. Þetta verður stuð.
Hér set ég eina mynd inn úr afmælinu hennar Unni Báru einhvertíman þegar við vorum í garðaskóla, Sigga, Gamin og Unnur Bára í hoppimyndaæðinu fræga.
Jámm úpsídúpsí, það er soldið langt síðan ég bloggaði seinast, nánar tiltekið 11 ágúst, og er það nærri því mánuður síðan, skamm skamm Sóla mín.
En já hvað er ég búin að gera síðan ég bloggaði seinast, jú ég skellti mér með Siggu systur til Tenerife, vorum í viku og komum heim 26 ágúst. Það var voða kósý og gott að fá sér smá svona frí áður en skólinn byrjar og svona. Slöppuðum bara smá af og fengum okkur smá brúnku sem er reyndar öll farin núna og sem pabbi og mamma tóku ekki einu sinni eftir :(, já það er bara afrek fyrir okkur systur að verða andlitslitaðar, en það tókst þó í þessari ferð. Fékk líka smá bikinífar, en það er líka óðum að hverfa.
Hér er ég á svölunum á hótelherberginu okkar Siggu. Keypti þennan kjól úti :p Annars er ég ekki búin að gera eitthvað það mikið, nema skólinn er byrjaður á fullu og það gengur bara sinn vanagang. Heimadæmi til að skila og dæmi til að reikna. Er líka byrjuð aftur í kórnum og Heiðrún komst inní kórinn þ.a hún verður með okkur í kórnum í sumar, jeij og jibbí :). Það verður örugglega stuð.
Svo fór ég á nýnemadjamm seinustu helgi og skellti mér í partý með krökkunum af mínu ári. Daginn eftir var svo afmæli hjá Bjössa þjálfara þar sem mikið var um veigar. Við systurnar og Hildur gáfum honum ostakörfu í 30 ára afmælisgjöf. Við sigga skelltum okkur bara í Bónus og keyptum nánast allar tegundir af ostum sem til voru í Bónus, sem er slatti og keyptum kex og sultu og eitthvað þannig ásamt smá nammi og hnetum og fl, mig dauðlangaði bara að sleppa að gefa honum körfuna og éta allt í henni sjálf, lúkkaði allavegana frekar girnilega að mínu mati, ég líka elska ost á tuc kexi með rifsberjahlaupi á, sérstaklega piparost, náttla bara dellisíus.
Sigga í afmælinu hans bjössa. En meira verður þetta ekki að þessu sinni, ætla að slappa aðeins af, horfa á gilmore girls eða eitthvað og svo þarf ég að læra á morgun.
Jæja núna er lokavikan mín í vinnunni að hefjast. Ég á sem sagt bara eftir að vinna þessa viku og svo kviss bamm búmm þarf ég ekki að vinna meir, jeij og jibbí fyrir því J. Það fer að styttast í að hið alvöru líf fari að hefjast, skólinn að byrja og fleira skemmtilegt. Þetta sumar er samt búið að vera soldið fljótt að líða, nema kannski virku dagarnir en helgarnar fljúga alltaf hjá á ljóshraða. Ég er nú alveg búin að gera slatta í sumar, það er ekki búin að vera heil helgi sem ég gisti heima hjá mér í sumar. Ég hóf sumarið á því að fara til Póllands og Berlínar með háskólakórnum í ógleymanlega ferð þar sem var sungið, drukkið, keppt í fótbolta, farið í hókípóki á torgum póllands og trallað og skemmt sér ásamt því að versla mikið í H&M, til sönnunar um þessa Póllandsferð eru svona milljón myndir af mér á facebook. Núna eftir sumarið eru myndirnar af mér á facebook orðnar hátt í 600 myndir, eða um 593. Þannig að stalkerararnir mínir hafa nóg að gera að skoða allar þær myndir. Ég að syngja með kórnum mínum Fótboltafólkið, Ísland-Pólland,
En já ég gerði nú meira en að skella mér bara til Póllands og Berlínar. Það var farið í einhverjar útilegur. Fyrsta útilegan var á Hallgeirsey, það var mjög gaman en skítakalt. Mér hefur sjaldan verið svona kalt. En það var sungið drukkið og dansað eins og á að gera í alvöru útilegum. En einmitt í þeirru ferð keyptum við Heiða okkur hinar frægu íslandshúfur til að hlýja okkur á kollinum ásamt eldrauðum vettlingum. Við með húfuna og vettlingana frægu. Er búið að koma sér vel í sumar
Svo var ekkert hætt ferðalögum. Kórinn skellti sér til Siglufjarðar á þjóðlagahátíð. Við fórum í nokkrum bílum og við Sigga, Hildur, Ragga og María skelltum okkur saman á jeppanum hennar Maríu. Á Siglufirði var geggjað veður. Glampandi sól og varla sást ský á lofti. Og kórinn hélt ágæta tónleika í kirkjunni, okkur fannst Siglufjörður bara soldið sætur og fallegur bær. En við sluppum við kulda, bæði var gott veður og kórinn svaf inní skólanum á Siglufirði, voða sætur og gamall uppgerður skóli. Svo á laugardagskvöldinu var grillveisa og þvílíkt fjör í húsinu hjá Birnu í kórnum. eitthvað af kórnum í grillveislunni
Svo einhverjum helgum seinna fór kórinn í árlega útilegu sem kallast víst Litli Brúnn, farið var í Þrastarlund og gist helgi. Við fengum æðislegan stað inní skógi og algjört skjól, en það hefði varla þurft þetta skjól því að það var svo geggjað veður að marr ætlaði að kafna úr hita, allavegana um daginn. En já eins og í sönnum útilegum var drukkið og borðað og svo sungið með fegurri útilegusöngvum þar sem hér var á ferð fólk sem kann að syngja. Svo var hildur svo sniðug að vera búin að redda sér tónhvísl, þ.a við gátum byrjað á réttum tón og segja gamlir kórmeðlimar að sjaldan hafi kórdrykkjusöngvar tekist svo vel, enda úrvalslið mætt í útileguna. Við sigga og hildur við smá varðeld, allar í flottum lopapeysum :)
Svo síðast en ekki síst var farið núna um Verslunarmannahelgina til Eyja. Þessi ferð mun lifa lengi og skemmtum við okkur konunglega. Ferðin var algjör skyndiákvörðun, ákveðið var að skella sér á miðvikudegi og flugum við frá bakka á föstudegi. Við vinkonurnar erum svo búnar að ákveða að við ætlum að skella okkur aftur að ári, þannig að Eyjar 2009, here we come. Svo ætlum við allar að vera í eins lopapeysum og hafa þetta soldið alvöru. Koma með bíl til eyja og prufa að fara til Eyja án skyndiákvörðunar, og endilega að draga sem mest fólk með okkur. Þannig að allir sem þekkið mig, skellið ykkur til eyja með okkur.
Við stelpurnar útí eyjum.
Og svo núna á ég bara eftir að vinna í viku, og svo 19.ágúst er ég að fara til Tenerife í afslöppunarferð með Siggu og liggja í sólbaði og fl skemmtilegt. Svo þegar ég er búin að hlaða batteríin úti, þá byrjar skólinn strax.
Já þetta er búið að vera hið ágætasta sumar, búin að gera slatta og skemmta mér ágætlega.
Jæja lengra verður þetta ekki að þessu sinni, ætli það sé ekki tími kominn að fara að vinna eitthvað.
Jæja það er official. ÉG ER AÐ FARA TIL EYJA!!!!!!
Já við Sigga vorum að velta því fyrir okkur hvað við ættum eiginlega að gera um verslunarmannahelgina á þriðjudaginn. Vera bara heima og hafa það kósý, fara til Akureyrar eða eitthvað annað en innst inni langaði okkur langt mest til eyja. Svo sagði ég við Siggu, ef það er flug laust eigum við þá að skella okkur og Sigga sagði ok why not.
Þ.a ég hringdi og þá var laust flug á Bakka milli 11 og 10 á föstudaginn og svo heim á þriðjudaginn og við ákváðum bara að skella okkur á það. Svo er ekkert gaman ef bara ég og Sigga förum, þ.a ég hringdi í Heiðu og sannfærði hana um að skella sérmeð. Og svo að lokum bættust tvær við, þ.a ein skyndiákvörðun veður að 5 skyndiákvörðunum hjá mér og Siggu, Heiðu, Guðrúnu og Katrínu.
Újé, its gonna be, wait for it....... LEGENDARY
Svo náði Pabbi hennar Guðrúnar að redda okkur íbúð úti í eyjum þ.a ef það verður kalt og skítaveður skellum við okkur bara inn og svona= NICE.
Já núna um helgina fáum við að vita hvort að skyndiákvarðanir séu málið eður ei með vestmannaeyjar tilraun, en eins og margir sem þekkja mig er ég afar lítið í þeim, allataf gaman að prufa eitthvað nýtt, ekki satt :p.
Úff þannig að það er hellingur að gera í dag, pakka öllu og svona, versla inn og fl. marr er bara orðinn hálf stressaður. Fara í ríkið og nánast tæma það.
Ég er bara orðin nokkuð spennt. Erfitt að hugsa um eitthvað annað.
Ha! hvað þýða þessir 18 daga, jú þeir eru fjöldi daga sem ég á eftir að vinna þangað til ég hætti að vinna og fer til útlanda í vikurog svo byrjar skólinn. Virku dagarnir eru ekki alveg nógu góðir að vera fljótir að líða, en helgarnar eru hins vegar þrusuduglegar að þjóta hjá á ljóshraða.
Þessa helgi þá skellti ég mér með kórnum mínum í útilegu. Við tjölduðum í Þrastarlundi, sem er rétt hjá Selfoss. Við fengum svona stað í skóginum sem var umkringdur trjám og var mikið skjól og voða kósý. En eins og í öllum kórútilegum sæmir þá var sungið heilan helling, bæði í takti og án mikils falsleika, sem er alltaf góður kostur. Við komum á föstudagskvöldinu og tjölduðum í ágætisveðri. Miklu miklu heitar en þegar tjaldað var í hallgeirsey hér um daginn. Svo var bara tekið upp bjórinn og farið að skemmta sér.
Á laugardeginum fengum við besta veður í heimi, er smá brunnin eftir alla sólina og hitann sem var á laugardaginn. Við skelltum okkur í sund á Selfossi og svo fékk marr sér audda ís í góða góða veðrinu. Svo var skoðað Kerið góða, og við löbbuðum niður að því og nutum góða veðursins, gat verið á stuttbuxum allan daginn og notað nýju flottu sólgleraugun mín sem ég keypti mér.
Svo var grillað um kvöldið og farið í svæsinn sögudrykkjuleik, þar sem dvergaklám og margt annað kom upp, þessir kórstrákar ;). Og svo var gítarinn auðvitað tekinn upp og allir sungu hástöfum með og voða gaman. Líka svo kósy staður sem við tjölduðum á með svo mikið skjól.
En það er ekki hægt að það hafi verið sofið mikið um helgina, þegar ég kom svo heim dreif ég mig í sturtu og í hrein föt og skellti mér til hans júlla, því hann var í bænum. Við vorum bæði dauðþreytt eftir helgina og steinsofnuðum uppí rúmi.
En jæja, best að fara að vinna eitthvað. segi bara
Já, senn fer að styttast að sumrinu fari að ljúka, eða svo vona ég því ég er að fara til útlanda í lok sumars, langar helst bara að fara að klára þessa vinnu og fara aftur í skólann. Við Sigga ætlum nefnilega að skella okkur útí sólina og slaka aðeins á áður en annir verkfræðinnar taka við. Það verður örugglega afar afslappandi, bara að liggja í sólinni og gera sem minnst.
Þessa dagana er ég búin að vera að gera lítið annað en að vera að vinna og svo chilla eftir vinnuna. Við Sigga erum að fara um allt land að fara yfir hættuleg efni hjá Orkuveitunni. Erum búnar að fara á Stykkishólm, Grundarfjörð, Hellu og svona mætti lengi telja og svo vorum við á Akranesi í gær.
Pabbi var svo sniðugur að lána stóra bílinn okkar, þannig að við erum bíllausar þessa vikuna þar sem hann fær þá okkar bíl. Sem er ekkert alltof sniðugt þegar maður býr á Álftanesi og þarf að mæta í vinnuna í Orkuveitunni uppá höfða. En Júlli var svo góður að han hann lánaði mér bílinn sinn í vikunni þannig að það reddaðist, það hefði verið síður skemmtilegt að koma sér í vinnuna, annað hvort að fara með pabba í vinnuna sem marr veit aldrei hvenær fer af stað eða hvenær hann fer heim, eða þá keyra mömmu í vinnuna og taka bílinn og sækja hana svo, sem er frekar óhentugt þar sem hún er með allt annan vinnutíma en við. En þetta reddaðist allt saman, þar sem Júlli var svo frábær að lána okkur bílinn. Sparaði okkur systrum mikla pirringsorku og nú getur marr líka gert eitthvað eftir vinnu, farið í sund eða eitthvað, hafa það nice.
Núna þessa helgi eru allar líkur á því að marr skelli sér í útilegu með kórnum. Það verður örugglega gaman og einhvern veginn grunar mig að það verði mikið um söng, sem er náttla bara gaman :p. Pant syngja hæst.
Jæja best að fara að koma sér að gera eitthvað í vinnuni. segi bara adios þangað til næst